Eins og þeir sem þetta lesa eru sjálfsagt búnir að átta sig á, er ég lítið fyrir plast. Þessi andúð mín nær einnig til plastspjaldanna sem við notum til að borga með. Reyndar lagði ég VISA kortinu fyrir 3 árum. En Debetkortið er ég því miður enn að nota - fylgist bara rosalega vel með hvað fer út af því. En af hverju þessi andstyggð á kreditkortum?
Jú sjáið nú til.
Ástæða þess að það borgar sig að nota frekar peninga (þar er annars vegar um að ræða blöð með lit , tölustöfum og myndum sem sýna ákveðin verðgildi og hins vegar kringlulaga mynt úr málmi sem einnig hafa tölur og myndir sem tákna verðgildi
) er sú að þegar þú borgar með peningum ertu að láta eitthvað í stað þess sem þú færð og það kostar mann meiri íhugun en að láta kort sem þú færð aftur og þarft bara að skrifa nafnið þitt á blað. Ég rakst á ansi sniðuga umfjöllun um þetta í bók um daginn (já ég les líka bækur um sparnað). Þar stóð (ekki orðrétt): kreditkortið var fundið upp í kjöfar seinni heimsstyrjaldarinnar þegar markaðurinn fylltist af allskyns heimilistækjum og öðru slíku sem fór að þykja sjálfsagt á hverju heimili. Gallinn var bara sá að aðeins þeir efnuðu gátu veitt sér þessa hluti. Almúginn hélt áfram að velta hverri krónu og þurfti að spara í langan tíma til að eignast eitthvað af þessum "nauðsynjavörum". Þá komu bankarnir fram með "instant gratification" kerfið - þ.e. eignast nú - borga seinna, jafnvel á löngum tíma. Og almúginn "succers we are" lét blekkjast. Nú gat Gunna sem var með lágu launin eignast það sama og Jóna með háu launin. Munurinn var bara sá að Gunna borgaði vexti og kostnað af því sem hún keypti á meðan Jóna slapp við allt slíkt því hún þurfti ekki að fá lánað fyrir vörunni. Kredit er nefnilega bara annað nafn yfir LÁN. Og hingað til (og væntanlega um alla framtíð) hefur fólk þurft að borga vexti af lánum. Þannig má segja að almúginn hafi byggt upp auð þeirra sem höfðu efni á hlutunum með vöxtunum sem þeir borguðu fyrir hlutina sem þeir höfðu ekki efni á. Þannig var nú það. Og þetta er skemmtilegasta og mest "eye opening" útskýring sem ég hef fengið á kreditkortinu. Og var ekki lengi að leggja því - ætla sko ekki að gefa bönkunum og auðmönnunum meira en ég hef nú þegar gert 
Hér er líka gagnleg umfjöllun um krítarkortin.
